Kaffi - vefverslun

Mið- og S-Ameríka

Heimsálfa þar sem obbinn af því úrvalskaffi sem við njótum dags daglega er framleiddur. Kaffið er yfirleitt tært, með góðri fyllingu og ávaxtatónum.

Afríka

Kaffiplantan á uppruna sinn að rekja til Afríku og þaðan kemur kaffi sem hefur margslungið og ævintýralegt bragð.

Indónesía

Kaffi frá Indónesíu er hægt að lýsa sem hægu haustveðri við strendur regnskóga. Þungt og drungalegt með mikilli fyllingu. Gott með eftirréttum.

Kaffiblöndur

Kaffimeistari getur blandað saman kaffibaunum frá mismunandi löndum og leikið sér með bragðið rétt eins og tónlistarmaður gerir við tóna og getur þannig skapað kliðmjúkar sinfóníur fyrir bragðlaukana

Lífrænt

Á þeim búgörðum sem eru með vottun um lifræna ræktun er enginn tilbúinn áburður notaður. Þetta gerir það að verkum að jörðin brosir við kaffiplöntunum.

Expressó

Kaffibaunir sem eru brenndar þar til þær verða dökkbrúnar og sléttar nefnum við expressó. Ljósasta expressó brennslan nefnist Vínarbrennsla. Eftir því sem baunin er dekkri á litinn gefur hún brenndari keim. Mikið brennt kaffi er einstaklega gott í heimilisexpressóvélar, baunavélar og ítölsku mokkakönnurnar. Expressó er hrein unaðslegt með mjólk eða rjóma.

Bragðbætt

Margir hafa gaman af smá tilbreytingu við kaffidrykkju og þá getur bragðbætt kaffi verið skemmtilegur útútdúr frá vananum. Bragðefnin sem við notum eru olíur og eru án allra sætuefna.

Koffeinlaust

Koffeinið er fjarlægt úr kaffibaununum með náttúrulegum efnum og eftir situr ósvikið kaffibragð. Koffeinlaust kaffi fer vel í maga og hentar öllum þeim sem líkar bragðið en þurfa að forðast áhrifin. Efnin sem notuð eru við framleiðsluna eru koltvísýringur og vatn og því skaðlaus með öllu.

Cup of excellence

Alþjóðlegir kaffidómarar á vegum Cup of Excellence velja besta kaffið í hverju framleiðslulandi fyrir sig. það er gert með það fyrir augum að auka vel úrvalskaffis, auka tekjur bænda og auðvelda kaupendum að hreppa bestu afurðirnar. það eru þó mjög fáar kaffitegundir sem hljóta þennan frama en þær tegundir sem fá 84 stig og yfir komast í þennan mikilsmetna hóp og eru síðan boðnar hæstbjóðendum á Netinu. Verð þess hækkar auðvitað umtalsvert við að komast í þennan flokk. 85% af advirði sölunnar renna síðan beint til bóndans.

Afgreiðslutímar

Fróðleikur

Kafftár í Senseovélar

Fjölnota hylki fyrir malað kaffi sem hægt er að setja í Senseo vélar. Hylkið er afar auðvelt og þægilegt í notkun.

Lesa mola  |  Sjá fleiri mola

Við mælum með

Umhverfismál

Við látum verkin tala.
Sjá nánar